headBanner4.jpg
You need Adobe Flash player to view this content. Download now.
  • Heim
  • Um okkur
    • Alþjóðlegt samstarfsverkefni
    • Samstarfsaðilar
    • Starfsmenn
  • Strandmenning
  • Bátar og skip
  • Fiskveiðar
  • Sjávarspendýr
  • Samfélag
  • Samtímamál
  • Grænland og Færeyjar
  • Ströndin
  • Bækur, tímarit & kvikmyndir
  • Ráðstefnur
  • Fréttir og fundir
  • Áhugaverð verkefni
  • Áhugaverðir tenglar
  • Verkefnið í fjölmiðlum
  • Efni úr ljósvakamiðlum
  • Efnistök
  • Veftré
  • Innskráning
Íslenska (IS)English (United Kingdom)

friendlybanner_logo

fishernet_newsletter_3_logo

Forsíða Um okkur
Íslenskir þátttakendur
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar
rannsoknarhusStofnun Vilhjálms Stefánssonar á Akureyri er íslensk norðurslóðastofnun sem starfar samkvæmt lögum nr. 81 frá 26. maí 1997. Stofnuninni er ætlað innlent og alþjóðlegt hlutverk viðvíkjandi rannsóknum, upplýsingamiðlun, ráðgjöf og samvinnu á sviði sjálfbærrar þróunar og umhverfismála á norðurslóðum.

Verkefni stofnunarinnar tengjast í áherslu á þverfaglega og fjölþjóðlega umfjöllun um fræðilegar og hagnýtar lausnir á viðfangsefnum sem sérstaklega tengjast norðurslóðum. Í starfi stofnunarinnar er lögð áhersla á að ekki sé vænlegt að slíta náttúruvernd úr samhengi við náttúrunýtingu eða þá hagsmuni sem tengjast þeirri viðleitni samfélaga að sjá sér farborða.

Líffræðileg fjölbreytni er mikilvæg en mannvist á norðurslóðum snýst ekki minnst um varðveislu menningarlegrar fjölbreytni og möguleika smárra samfélaga til að lifa í samræmi við eigið gildismat.

Íslendingum er nauðsynlegt að þekkja til áforma og væntinga alþjóðasamfélagsins sem hefur svo mikil áhrif á möguleika okkar og afkomenda okkar. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar hefur hlutverki að gegna við öflun og miðlun slíkrar þekkingar.

Stofnunin heyrir undir umhverfisráðuneytið og hóf haustið 1998 starfsemi í húsnæði Háskólans á Akureyri við Norðurslóð. Í október 2004 var stofnunin flutt í Borgir, nýtt húsnæði á háskólalóðinni.

Tök:
  • Stofnun Vilhjálms Stefánssonar
 


fishernet.is | Stefansson Arctic Institute| http://www.svs.is | tel: 460 8980 | fax: 460 8989 | contact us