Útræði frá sjávarjörðum - saga, hefðir, réttur |
Snemma á öldum helguðu kirkjustofnanir og auðmenn sér með einhverju móti tollfría skipstöðu á jörðum þaðan sem best var að gera út. Hvað varðar veraldlega auðmenn má minnast á Bessastaði þar sem Snorri Sturluson hafði bú á 13. öld og kóngsvaldið danska sat síðar og gerði út báta í svo stórum stíl að Álftanes kallaðist Kóngsnes á seytjándu öld. Þetta voru kvótaeigendur síns tíma. Hvernig er þessu varið nú? Guðrún Ása Grímsdóttir, sérfræðingur hjá Árnastofnun fjallar um sjávarjarðir í erindi sínu Útræði frá sjávarjörðum - saga, hefðir, réttur, sem hún hélt á ráðstefnu Samtaka eigenda sjávarjarða þann 22. nóvember 2002. |