Silfur hafsins - Gull Íslands |
There are no translations available. Höfundar: Benedikt Sigurðsson, Birgir Sigurðsson, Guðni Th. Jóhannesson, Hjörtur Gíslason, Hreinn Ragnarsson, Jakob Jakobsson, Jón Þ. Þór, Steinar J. Lúðvíksson
Silfur hafsins - Gull Íslands er síldarsaga Íslendinga, þriggja binda stórvirki í veglegri öskju, 1100 bls. í stóru broti með um 800 myndum og teikningum. Í verkinu er rakin saga síldveiða og vinnslu frá fyrstu tíð, sagt frá frumkvæði Norðmanna á 19. öld og síldarævintýrum Íslendinga á síðustu öld.
Með skrifum sínum gefa færustu vísinda- og fræðimenn verkinu faglegt og sögulegt gildi og aðrir höfundar gæða það lífi og mannlegri vídd. Hér er skráð saga atvinnulífs og mannlífs í landinu á lifandi, fræðandi og fagmannlegan hátt.
Síldin hefur snert líf nær allra Íslendinga á liðnum öldum, með einum eða öðrum hætti, þess vegna kemur saga síldarinnar okkur öllum við. Tveir kaflar úr ritverkinu eru birtir hér með leyfi Nesútgáfunnar sem gaf bækurnar út árið 2007.
Kafli IV, bls.: 1-10, 11-20, 21-30, 31-40, 41-50, 51-60, 61-70, 71-82 |