Síldarannáll |
There are no translations available. Síldarsaga Íslands markaði djúp þáttaskil í sögu þjóðarinnar. Síldin var kölluð silfur hafsins og gull Íslands og skóp auðæfi sem hér höfðu ekki áður sést. Við sjávarsíðuna spruttu upp heilu byggðarlögin þegar síldarævintýrið stóð sem hæst, byggðarlög sem síðan lognuðust útaf með hvarfi síldarinnar. Sumstaðar er unnið að nýsköpun í rústum gamalla verksmiðja, annars staðar hvílir þögnin ein yfir horfnum ævintýrum. Hér að neðan má lesa síldarannál sem Hreinn Ragnarsson ritaði, en annállinn spannar tímabilið frá 1866 til 1975. |