Hlunnindi jarða og ýmsar aðgerðir sem takmarka nýtingu þeirra |
There are no translations available. Hlunnindi jarða voru um aldir stór þáttur í afkomu fólks í byggðum landsins. Með búseturöskun og breyttum lífsháttum á síðari tímum breyttist þetta, sumt féll í gleymsku og annað hefur komið í staðinn, en margt hefur þó haldið gildi sínu. Sem lítið dæmi um breyttar áherslur má nefna að sportveiði margs konar hefur komið í stað þess að veiða sér til bjargar og jafnvel til að bjarga fólki frá hungri.
Hlunnindi jarða og ýmsar aðgerðir sem takmarka nýtingu þeirra er heiti erindis Árna Snæbjörnssonar, hlunnindaráðunauts hjá Bændasamtökum Íslands, sem hann hélt á ráðstefnu Samtaka eiganda sjávarjarða þann 22. nóvember 2002. Hlunnindi jarða |