headBanner9.jpg
Velkomin á vef fishernet.is
  • Arctic Portal
  • AP Community
  • Portlets
  • Arctic Council
  • Science
  • Organizations
  • Maps
  • Library
  • Acronyms
  • Links
  • Search
  • Heim
  • Um okkur
  • Fishernet skýrslur
  • Sögur úr sjávarbyggðum
  • Samfélag
  • Strandmenning
  • Bátar, skip og smíðar
  • Fiskveiðar
  • Sjávarspendýr
  • Grænland og Færeyjar
  • Ströndin
  • Bækur, tímarit & kvikmyndir
  • Ráðstefnur
  • Fréttir og fundir
  • Áhugaverð verkefni
  • Efni úr fjölmiðlum
  • Áhugaverðir tenglar
  • Efnistök
  • Veftré
  • Innskráning
Icelandic(IS)English (United Kingdom)
forum

friendlybanner_logo

fishernet_newsletter_3_logo

Kvikmyndir

DocumentsDate added

Order by : Name | Date | Hits [ Descendent ]
file icon Björgunarafrekið við Látrabjarg 06/28/2010 Hits: 303

Björgunarafrekið við Látrabjarg, Óskar Gíslasonsyksy_004

Er sextíu ár gömul heimildamynd Óskars Gíslasonar, ljósmyndara og kvikmyndagerðamanns og segir frá frækilegri björgun heimamanna á Látrum og nágrenni, á breskum skipbrotsmönnum af togaranum Dhoon, 12. Des. 1947. Björgun skipsbrotsmannanna er talið einstakt björgunarafrek og það er einnig einstakt afrek að hafa komið þessum viðburði á filmu.

file icon Lífið er saltfiskur 06/28/2010 Hits: 284

Lífið er saltfiskur, Erlendur Sveinssonsaltfiskur

Myndaflokkurinn Lífið er saltfiskur (1984) var framleiddur fyrir SÍF af Lifandi myndum undir stjórn Erlendar Sveinssonar sem einnig skrifaði .handritið og klippti myndina. Tilefnið var 50 ára starfsemi Sölusambandsins. Flokkurinn var ráðgerður í þremur hlutum en einungis 1. og 3. hluti litu dagsins ljós.

Þriðji hlutinn, Baráttan um markaðina, fjallar um framleiðslu- og verslunarsögu íslenska saltfisksins frá árum heimsstyrjaldarinnar fyrri og fram á afmælisár SÍF 1982. Grunnhugmynd verksins er sú að sýna hvernig allt er öðru háð í heimi viðskiptanna og að kreppur koma og fara. Nú er þessi heimur með öllu horfinn og það síðasta sem fréttist af SÍF í kjölfar efnahagshrunsins 2008 er að fjórðungur félagsins sem nú heitir Alfesca er kominn í franska eigu.

file icon Silfur hafsins 06/28/2010 Hits: 268

SilfurSilfur hafsins, Erlendur Sveinsson og Sig. Sverrir Pálsson

Heimildarkvikmyndin Silfur hafsins (1987) sem Lifandi myndir framleiddi fyrir Félög síldarsaltenda með stuðningi Síldarútvegsnefndar. Myndin rekur síldarsöguna frá fyrri öldum og upp að framleiðslutíma myndarinnar. Inn í þá sögu vefst síldarvertíðin sem í byrjun níunda áratugarins var nútíð en er nú, rúmum 20 árum síðar, veröld sem var. Í aðdraganda síldarvertíðarinnar er fylgst með gangi sölumála undir forystu Gunnars Flóvenz og því hvernig sölusamningar sem þá voru gerðir fyrirfram lögðu grunninn að vertíðinni og undirbúningi hennar. Myndin leitast við að varpa ljósi á mikilvægi þess að hafa gott skiplag á síldarframleiðslunni með hliðsjón af því hruni sem þessi atvinnugrein hafði margsinnis gengið í gegnum.

file icon Verstöðin Ísland 1 - Frá árum til véla 06/28/2010 Hits: 282

VerstdinVerstöðin Ísland 1 - Frá árum til véla, Erlendur Sveinsson

Í fyrsta hluta myndaflokksins Verstöðn Ísland- Frá árum til véla, sem Erlendur Sveinsson stjórnaði og gerði handrit að, er gerð grein fyrir útgerðarháttum þjóðarinnar á árabátatímanum sem segja má að hafi staðið samfellt yfir frá landnámsöld og fram yfir aldamótin 1900. Eftir yfirlit yfir sjávarútvegssögu liðinna alda, er fjallað um þilskipaöldina og þær breytingar sem fylgdu komu þilskipanna. Greint er frá upphafi vélvæðingarinnar í sjávarútveginum upp úr síðustu aldamótum, fyrst í bátaútgerðinni en litlu síðar með tilkomu togaraútgerðarinnar. Leitast er viða ð lýsa áhrifum atvinnubyltingarinnar sem vélvæðingin hafði í för með sér á gamla bændasamfélagið um leið og sjávarútvegssagan er rakin til heimsstyrjaldarinnar fyrri sem markar ákveðin þáttaskil.

file icon Verstöðin Ísland 2 - Bygging nýs Íslands 06/28/2010 Hits: 268

Verstdin2Verstöðin Ísland 2 - Bygging nýs Íslands, Erlendur Sveinsson

Í öðrum hluta Verstöðvarinnar er rakin þróunarsaga sjávarútvegsins á árunum 1920-1950. Á þeim tíma lagði sjávarútvegurinn grunn að þeirri gjörbreyttu samfélagsgerð á Íslandi sem tók við af gamla bændasamfélaginu. Fjallað er um hina miklu uppbygginu sem átti sér stað í útgerð og fiskvinnslu á þriðja áratugnum á sama tíma og miklir erfiðleikar á fiskmörkuðum steðjuðu að. Lýst er baráttunni sem háð var í sjávarútveginum á kreppuárunum eftir 1930 er síðar tók á sig nýja mynd við breyttar aðstæður í heimsstyrjöldinni síðari. Þessi myndhluti endar á endurreisnarátaki eftirstríðsáranna, sem kennt hefur verið við nýsköpun og svipast er um í þjóðfélaginu um 1950.

file icon Verstöðin Ísland 3 - Baráttan um fiskinn 06/28/2010 Hits: 274

Verstdin3Verstöðin Ísland 3 - Baráttan um fiskinn, Erlendur Sveinsson

Þessi myndhluti spannar tímabilið frá 1950 til ársins 1989. Á þessum tíma leiða sveiflur í aflabrögðum til þæess að úthafsveiðar koma til sögunnar í vaxandi mæli. Þetta er tímabilið, þegar Íslendinagar sjá sig knúna til að verja auðlind sína og færa landhelgina út í áföngum úr 3. sjómílum árið 1952 í 200 sjómílur 1975 með tilheyrandi átökum við aðrar fiskveiðiþjóðir jafnframt því sem skuttogaravæðing á sér stað og eldgos brýst út í stærstu verstöð landsins. Auðlindin er ekki óþrjótandi og þar kemur að Íslendingar verða að takmarka eigin sókn með setningu kvótakerfis.Tilkoma stóru loðnuskipanna og vaxandi vinnslu um borð í frystiskipum markar lok þessa sögulega hluta Verstöðvar Íslands.  

file icon Verstöðin Ísland 4 - Ár í útgerð 06/28/2010 Hits: 264

Verstdin4Verstöðin Ísland 4 - Ár í útgerð, Erlendur Sveinsson

Lýst er einu ári í útgerð á Íslandi á tökutíma myndaflokksins og byggt á þeirri hugmynd að híð nána samspil útgerðar og fiskveiða.

Myndin hefst á vetrarvertíð og endar á jólum. Tvö skip, vertíðarbátur og togari af milliistærð, gerð út frá sömu vertíðarstöðinni, eru í aðalhlutverkum, ásamt útgerðamönnum þeirra og skipverjum. Báturinn er á netaveiðum á vetrarvertíðinni, trolli yfir sumartímann og á síldveiðum í nót um haustið. Togarinn er farinn að láta á sjá í byrjun myndar og er sendur í lengingu og viðhald til Póllands um sumarið. Að loknum breytingum hefur hann veiðar um haustið og siglir undir jól á með aflann á markað til Bremenhaven. Myndin endar á jólum þegar flotinn er í höfn og hugleidd er framtíð sjávarútvegs.

file icon Síðasti valsinn 1-3 06/28/2010 Hits: 263

SidastiValsinSíðasti valsinn 1-3, Margrét Jónasdóttir og Magnús Viðar Sigurðsson

Myndin segir frá örlagaríkum átökum á myrkum og hættulegum fiskimiðum við Íslandsstrendur þar sem tvær þjóðir börðust fyrir lífsafkomu sinni. Í húfi var líf eða dauði heillrar atvinnugreinar sem fiskveiðisamfélög Breta og Íslendinga byggðu á. Þorskastríðin voru fyrsta alþjóðlega deila hins nýstofnaða lýðveldis á Íslandi og sýndu hversu lítil þjóð er megnug þegar stór mál eru í húfi. Þættirnir eru þrír. Hinir tveir fyrri rekja sögu veiða Beta við Ísland auk þess að lýsa baráttuaðferðum stríðsaðila. Sá þriðji leitast við að útskýra stjórnmáladeiluna.

file icon Ingaló 06/28/2010 Hits: 317

IngaloIngaló, Ásdís Thoroddsen

Kvikmynidn Ingaló er raunsæisverk frá árinu 1993 eftir Ásdísi Thoroddsen. Myndin segir frá lífinu í litlu sjávarþorpi þar sem fiskurinn er allt. Ingaló er send suður í geðrannsókn eftir að lenda upp á kant við föður sinn og áhöfnina á Matthildi ÍS 167 en ræður sig á þann báð síðar ásamt bróður sínum. Í heimahöfn búa flesir úr áhöfninni í verbúð. Eftir villt partý í verbúðinni leggur Matthildur upp í örlagaríka sjóferð. Undiralda myndarinnar er gagnrýni á illan aðbúnað verkafólk í fiskiðnaði og úthlutunarreglur á kvóta.

file icon Hafið 06/28/2010 Hits: 257

HafidHafið, Baltasar Kormákur

Kvikmyndin Hafið er frá 2002 og fjallar um mismunandi hugmyndir um meðferð kvótans innan fjölskyldu útgerðamannsins Þórðar sem i 50 ár hefur verið aðalatvinnurekandinn í plássinu. Hann kallar börn sín á fund og ætlar að leggja þeim línurnar um framtíð fyrirtækisins. Þá kemur í ljós að þau hafa aðrar hugmyndir um eigin framtíð og vilja helst selja kvótann hæstbjóðanda til að njóta ávaxtanna annars staðar. Að auki liggja í fortíðinni ýmis óleyst mál svo uppgjör er óumflýjanlegt með afleiðingum sem engan óraði fyrir.  „...Gjafakvótinn....upphafið að efnahagshruninu." Segir leikstjórinn Baltasar Kormákur.

file icon Fiskur undir steini 06/28/2010 Hits: 250

Fiskur undir steini,  Þorsteinn Jónsson

Sjónvarpsmyndin Fiskur undir steini var sýndi í Ríkissjónvarpinu árið 1974. Myndin fjallar um neyslu menningar í íslensku sjávarþorpi þar sem íbúarnir þorpsins vinna allan sólarhringinn og eiga því ekki kost á því að njóta menningar. Myndin vakti áköf skoðanaskipti þegar hún var sýnd og er trúlega enn ein umdeildasta mynd sem Sjónvarpið hefur sýnt. Handritshöfundar Þosteinn Jónsson og Ólafur Haukur Símonarson.

file icon Sjávarþorp 06/28/2010 Hits: 254

Sjávarþorp - Ólafsvík, Þorsteinn Jónsson

Sjónvarpsmyndin Sjávarþorp gerði Þorsteinn Jónsson á árunum 1973-1974 í Ólafsvík. Myndir segir frá lífi og störfum fólks í sjávarplássi á áttunda áratug síðustu aldar.  

file icon Ísland Þúsund ár 03/11/2011 Hits: 0

Leikstjórn. klipping og handritshöfundur Erlendur Sveinsson. Kvikmyndatökustjóri Sigurður Sverrir Pálsson. Tónlist eftir Jón Leifs, þjóðlög o.fl. Aðalleikandi Gunnar Leósson. 60 mín. Kvikmyndaverstöðin ehf. 1997.                                                                                                                                                                  

Myndin fjallar um einn dag í lífi og starfi árabátasjómanna á vetrarvertíð fyrir tíma tæknialdar. Þessi eini dagur endurspeglar sjósókn Íslendinga í þau þúsund ár sem árabátaöld var við lýði á Íslandi. Gefin er innsýn í veröld og hugarheim sem íslensk menning er að stórum hluta sprottin upp úr, þar sem blandast saman náttúrutrú, kristindómur, hjátrú og stundum galdur.

file icon Nýtt líf 03/11/2011 Hits: 0

Höfundur: Þráinn Bertelsson

Í aðalhlutverkum Eggert Þorleifsson og Karl Ágúst Úlfsson

Frumsýnd 30. september 1983

file icon Skytturnar 03/11/2011 Hits: 0

Höfundur: Friðrik Þór Friðriksson                                                                                                                   Myndin fjallar um tvo hvalveiðimenn sem lenda í óreiðu í Reykjavík  eftir  að bann var lagt á hvalveiði. Eggert Guðmundsson og Þórarinn Óskar Þórarinnson fóru með aðalhlutverkin. Frumsýnd 14. Febrúar 1987

file icon Svo á jörðu svo á himni 03/11/2011 Hits: 0

Höfundur: Kristín Jóhannesdóttir                                                                                                           

Myndin gerist árið 1936 og fjallar um unga stelpu að nafni Hrefna sem byrjar að blanda saman fortíð og framtíð í ímyndunarafli sínu. Hún var frumsýnd í Háskólabíó 1992. Leikarar Tinna Gunnlaugsdóttir, Pierre Veck, Álfrún Örnólfsdóttir, Helgi skúlason, Sigríður Hagalín.

file icon Dansinn 03/11/2011 Hits: 0

Höfundur: Ágúst Guðmundsson

Myndin er byggð á sögu færeyska rithöfundarins William Heinesen, Það á að dansa, sem komið hefur út í íslenskri þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar. Leikarar:  Gunnar Helgason, Baldur Trausti Hreinsson, Pálína Jónsdóttir, Dofri Hermannson, Gísli Halldósson, Kristina Sundar Hansen. Frumsýnd 25. september 1998

file icon Í faðmi hafsins 03/11/2011 Hits: 0

Höfundar: Lýður Árnason og Jóakim Reynisson.                                                                                              

Myndin fjallar um ungan útgerðarmann sem er að fara að gifta sig, en brúðurin hverfur á brúðkaupsnóttunni og ekkert finnst nema kjóllinn hennar í fjörunni. Meðal leikenda: Margrét Vilhjálmsdóttir, hinrik Ólafsson og Einar Oddur Kristjánsson.                                                                 Frumsýnd 2001

file icon Reykjaík – Rotterdam 03/11/2011 Hits: 0

Höfundur: Óskar Jónasson.

Öryggisvörður og fyrrverandi sjómaður sem afplánað hefur fangelsisdóm fyrir áfengissmygl berst við að halda fjölskyldu sinni á floti. Honum býðst að fara einn vel launaðan síðasta túr á flutningaskipi milli Reykjavíkur og Rotterdam. Hann slær til, í þeirri von að koma sér á réttan kjöl en óvæntir atburðir setja strik í reikninginn. Spennumynd.                                                                                   

Leikarar: Baltasar Kormákur, Ingvar E. Sigurðsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Ólafur Darri Ólafsson, Lilja Nótt. Frumsýnd 3. október 2008.

file icon Reykjavík Whale Watching Massacre 03/11/2011 Hits: 0

Höfundur: Júlíus Kemp                                                                        

Reykjavík Whale Watching Massacre segir frá hópi erlendra ferðamanna sem fara í hvalaskoðun. Þegar bátur hópsins verður vélarvana kemur hvalveiðiskip nokkuð fyrst á vettvang, og eru áhafnarmeðlimir þess allt annað en hrifnir af ferðamönnum í hvalaskoðun.   Leikarar: Halldóra Geirharðsdóttir, guðrún Gísladóttir, Helgi Björnsson, Ragnhildur Steinunn, Gunnar Hansen, Pihla Viitala, Nae, Terence Anderson, Miranda hennessy, Aymen Hamdouchi, Snorri Engilbertsson.                                                                                                                                       

Frumsýnd 2. September 2009.     

<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>
Síða 1 af 2
fishernet.is | Stofnun Vilhjálms Stefánssonar | http://www.svs.is | sími: 460 8980 | bréfsími: 460 8989 | hafa samband