headBanner11.jpg
Velkomin á vef fishernet.is
  • Arctic Portal
  • AP Community
  • Portlets
  • Arctic Council
  • Science
  • Organizations
  • Maps
  • Library
  • Acronyms
  • Links
  • Search
  • Heim
  • Um okkur
  • Fishernet skýrslur
  • Sögur úr sjávarbyggðum
  • Samfélag
  • Strandmenning
  • Bátar, skip og smíðar
  • Fiskveiðar
  • Sjávarspendýr
  • Grænland og Færeyjar
  • Ströndin
  • Bækur, tímarit & kvikmyndir
  • Ráðstefnur
  • Fréttir og fundir
  • Áhugaverð verkefni
  • Efni úr fjölmiðlum
  • Áhugaverðir tenglar
  • Efnistök
  • Veftré
  • Innskráning
Icelandic(IS)English (United Kingdom)
forum

friendlybanner_logo

fishernet_newsletter_3_logo

Forsíða Áhugaverð verkefni
Áhugaverð verkefni
Húni II.

Húni II. er stærsta eikarskip smíðað á Íslandi sem enn flýtur, smíðaður í Skipasmíðastöð KEA á Akureyri 1962-1963. Skipið var í fyrstu á síldveiðum en síðar á þorskanetum, trolli, humar, línu, netum og svo aftur á síld. Um 1990 lenti skipið á kvótakerfisflakki þegar tilhneiging var til að úrelda gamla báta, ekki hvað síst trébáta og fórna þeim fyrir önnur skip.  Árið 1994 keypti Þorvaldur Skaptason bátinn á Seyðisfirði fyrir 10 krónur. Báturinn var þá vélarlaus og beið  þess að vaskir menn settu hann á áramótabrennu. Þorvaldur hraktist með bátinn á milli staða og reyndi að finna honum hlutverk. Endaði með hann í hvalaskoðun í Hafnarfirði ásamt konu sinni Ernu. Árið 2004 var bátnum siglt til Akureyrar og þar var stofnað um hann félag – Hollvinafélag Húna II. Árið 2006 keyptu ríki, bær og KEA skipið af Þorvaldi og færðu Iðnaðarsafninu að gjöf. Gjöfinni  fylgir sú yfirlýsing að Hollvinafélag Húna II. skuli taka að sér rekstur skipsins. Þannig hefur það verið síðan og er Húni II. gerður út fyrir ferðmenn, skóla og einstök verkefni. 

Hollvinafélagið ásamt öðrum gaf út bæklinginn Verum klár, borðum físk.

 
Verkefnið Sail Húsavík 2011

Strandmenningarhátíðin Sail Húsavík 2011 er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og hófst undirbúningur fyrri hluta árs 2008.sail_husavik Hátíðin verður haldin í samvinnu við strandmenningar- og siglingasamtök á Norðurlöndum. Verndari hátíðarinnar er rithöfundurinn og siglingakappinn Arved Fuchs www.arved-fuchs.de.  

Sail Húsavík 2011 verður hátíð gamalla trébáta, tónlistar, handverks, matar, fræðslu, lista, funda og síðast en ekki síst tækifæri til að hitta sér líka. Vettvangur lærða og leikinna um strandmenningu að fornu og nýju.

Upplýsingar er að finna á heimasíðu verkefnisins http://www.sail-north.net/ eða í kynningarbæklingi á pdf formi hér.

 
Samstarfsverkefni Síldarminjasafns Íslands á Siglufirði við Bátaverndarmiðstöð Norður-Noregs í Gratangen um menntun bátasmiða

Verkefni_gamlislippurinnVerkefnið hófst síðla árs 2007. Markmiðið er að gamli Slippurinn á Siglufirði öðlist nýtt líf og að þar verði hægt að halda námskeið í smíði báta. Tveir smiðir fóru til Gratangen á haustdögum 2008 og smíðuðu bát undir leiðsögn heimamanna. Auk þess kynntu þeir sér bátavernd í Noregi og tóku þátt í ráðstefnu um samíska báta. Í júlí 2009 verður annað námskeið á Siglufirði undir leiðsögn yfirskipasmiðsins í Gratangen.

Myndin er tekin í október 2007 þegar norður-norskir bátasérfræðingar komu í heimsókn í Slippinn og sátu undirbúningsfund með heimamönnum.

Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>

Síða 2 af 2
fishernet.is | Stofnun Vilhjálms Stefánssonar | http://www.svs.is | sími: 460 8980 | bréfsími: 460 8989 | hafa samband