headBanner6.jpg
Velkomin á vef fishernet.is
  • Arctic Portal
  • AP Community
  • Portlets
  • Arctic Council
  • Science
  • Organizations
  • Maps
  • Library
  • Acronyms
  • Links
  • Search
  • Heim
  • Um okkur
  • Fishernet skýrslur
  • Sögur úr sjávarbyggðum
  • Samfélag
  • Strandmenning
  • Bátar, skip og smíðar
  • Fiskveiðar
  • Sjávarspendýr
  • Grænland og Færeyjar
  • Ströndin
  • Bækur, tímarit & kvikmyndir
  • Ráðstefnur
  • Fréttir og fundir
  • Áhugaverð verkefni
  • Efni úr fjölmiðlum
  • Áhugaverðir tenglar
  • Efnistök
  • Veftré
  • Innskráning
Icelandic(IS)English (United Kingdom)
forum

friendlybanner_logo

fishernet_newsletter_3_logo

Forsíða Fréttir og fundir
Fréttir og fundir
Exploring the wealth of coastal fisheries: Listening to community voices
 
Symposium: "Fishing People of the North," Anchorage, Alaska, 14-18 September 2011

The 27th Lowell Wakefield International Fisheries Symposium, FISHING PEOPLE OF THE NORTH: CULTURES, ECONOMIES, AND MANAGEMENT RESPONDING TO CHANGE, will be held 14-18 September 2011 in Anchorage, Alaska. This international symposium will provide a forum for scholars, fishery managers, fishing families, and others to explore the human dimensions of fishery systems and growing need to include social science research in policy processes.

Theme areas will include: (1) Human/Environment Relationships; (2) Fishing Communities in Transition; (3) Indigenous and Rural Knowledge and Communities; (4) Governance and Management Issues in the North; and (5) Celebrating the Life of Fishing Peoples

Please submit proposed panel title, abstract (250 words), and expected speakers by 15 November 2010 to Courtney Carothers at: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Organizers also welcome individual paper and poster abstracts.

For more information on this symposium, see: http://seagrant.uaf.edu/conferences/2011/wakefield-people/index.php.

 
Þriðja fréttabréf Trossunnar

fishernet_newsletter_3_logo

Nú er komið út þriðja fréttabréf samevrópska verkefnisins FISHERNET: Fishing Cultural Heritage Network sem Stofnun Vilhjálms Stefánssonar tekur þátt í. Um er að ræða þriggja ára verkefni sem hlotið hefur styrk frá Menningaráætlun Evrópusambandins en lykilþátttakendur eru frá Galesíu (Spáni), Noregi, Búlgaríu, Íslandi, Kýpur og Orkneyjum (Bretlandi). Verkefnið miðar að því að varðveita, miðla og nýta menningararf sem tengist sjósókn og menningu fiskveiðisamfélaga. Framlag Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar er sérstaklega tengt  fiskveiðimenningu á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Íslenski hlutinn gengur undir nafninu Trossan og er að finna á vefslóðinni  www.fishernet.is.

Í fréttabréfi FISHERNET kennir ýmissa grasa frá þátttakendum verkefnisins og má þar nefna stutta kynningu á búlgarska vitaverkefninu sem tengist Alþjóðlega vitadeginum sem haldinn verður hátíðlegur um heim allan í ágúst 2010. Nú þegar hefur fimmtíu og ein þjóð skráð sig til leiks. Í fréttabréfinu er einnig umfjöllun um Slettnesvitann í Finnmörku (Finnmark) í Noregi sem er nyrsti viti á meginlandi Evrópu, tekinn í notkun árið 1905. Þar er nú kaffihús og eru sýningar haldnar í turni vitans. Jafnframt er sagt frá fundum og vettvangskönnunum í verkefninu sem voru í Reykjavík, á Siglufirði, Húsavík og Akureyri í maí síðastliðnum. Hluti af dagskránni var ráðstefnan 'Auður hafs og stranda: frumkvæði og nýsköpun til nýtingar menningararfs'. Meðal þeirra sem þar tóku til máls var Kristján  L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sem ávarpaði gesti við upphaf fundarins. 

Hægt er að nálgast fréttabréfið á heimasíðu Trossunnar. Þar einnig að finna gagnlegt efni; greinar, ritgerðir og annað efni tengt sjávar- og strandmenningu á Íslandi og Norður-Atlantshafi sem gæti hæglega nýst til rannsókna, kennslu eða skemmtunar.

 
Björgun menningarverðmæta

venemiesÍ gamalli skemmu í miðbæ Reykjavíkur er eini neminn í bátasmíði á Íslandi að gera upp gamla trébáta og forða þeim frá því að verða eyðileggingunni að bráð. Jón Ragnar og nokkrir vinir hans hafa stofnað Bátavinafélagið Súðbyrðing og komið sér upp aðstöðu til að gera upp gamla trébáta. Félagið hefur leitað uppi báta sem lágu hér og þar um landið og komið þeim undir þak til viðgerðar og endurnýjunar. Nýlega tóku þeir í fóstur árabátinn Sumarliða sem smíðaður var 1867 fyrir Skúla Skúlason í Fagurey á Breiðafirði. Jón Ragnar er einng varaformaður Íslenska vitafélagsins - félags um íslenska strandmenningu. Í þeim félagsskap er einnig reynt að vekja fólk til umhugsunar, bæði um bátaarfinn og annan menningararf við strendur landsins.                                                                                        

Lærifaðir Jóns Ragnars í bátasmíðinni er Hafliði Aðalsteinsson,bátasmiður og einn forkólfa Bátasafns Breiðafjarðar á Reykhólum.          

                                                                 

Auður hafs og stranda (júní 2010)

Í byrjun maí 2010 hittust evrópskir þátttakendur í Fishernet á Íslandi. Byrjað var á að sýna þeim nokkra valda staði á Íslandi þar sem vel hefur tekist til í uppbyggingu og nýtingu menningararfsins við sjávarsíðuna. Sjóminjasafnið í Reykjavík - Víkin, bátaviðgerðir hjá Jóni Ragnari og grásleppuskúrarnir við Grímsstaðavörina voru þeir staðir sem litið var við í Reykjavík. Síðan var haldið á Siglufjörð, kvöldverður snæddur á bryggjusporðinum í Bátahúsi Síldarminjasafnsins og hlustað á rímnakveðskap heimamanna. Daginn eftir var siglt með einu skonnortu landsins, Hauknum, til Húsavíkur og reyndi þá á sjóhreysti manna.purjelaiva

En allir komu þeir aftur og enginn þeirra dó. Eftir fundarsetur og kynningu á Húsavíkurbæ var loks haldið til Akureyrar, fundað enn meira og haldin ráðstefna undir heitinu: Auður hafs og stranda - frumkvæði og sköpunarkraftur til nýtingar menningararfs.

Ráðstefnan tókst í alla staði vel og erindin bæði fróðleg, skemmtileg og ógnvekjandi. Lítil skilma/fiskifæla stal þó senunni og varð til þess að samgönguráðherra hélt aukaávarp. Skilman er afrakstur samstarfs Fishernets og Iðngarðanna-Grasrót og birtist í formi bréfaklemmu/bókamerkis sem gerð er úr viði, með upplýsingum í lítilli bók, sem gerð er m.a. úr roði. Þarna er menningararfurinn nýttur til nýsköpunar og fræðslu. Afrakstur þessa samstarfs hefur orðið til þess að aðstoða hóp fólks sem áður var án vinnu, til að skapa sér atvinnu til framtíðar við gerð nytjalistar og minjagripa.

 

Ganga fjörulallans frá vita til vita (júní 2010)

Byggðasafnið í Garði vex og dafnar og aðsókn eykst ár frá ári. Í Garðinum eru menn stórhuga, en taka eitt skref í einu og huga vel að eigin sögu og rótum. Á síðustu misserum hefur Fishernet lagt þeim lið við uppbygginguna, nú síðast við göngu á Jónsmessu.

Á Jónsmessunótt glitra óskasteinar í tjörnum, jarðargróður er þrunginn vaxtarmagni og lækningarmætti, döggin hreinsunarmætti. Því velta menn sér naktir í dögginni. Grasa- og galdrakonur fara á kreik og tína jurtir sínar sem aldrei eru máttugri en þessa nótt. Álfar sjást á ferli og kynjaverur sveima á heiðum og í holtum.

Kannski voru þeir ekki allir mennskir, þátttakendurnir í göngu fjörulallans frá vita til vita á Reykjanesi. Í það minnsta birtust mun fleiri til leiks í upphafi göngu en áður höfðu skráð sig.patsas

Dagskráin hófst með erindi um sjóskrímsli og fleira sem Þorvaldur Friðriksson, skrímslafræðingur hélt. Eftir erindi hans var öllum ljóst að hópurinn gæti átt von á ýmsum uppákomum og kannski væri ekki allt sem sýndist. Áttatíu manns lagði síðan af stað í gönguna frá Stafnesvita að Garðskagavita undir leiðsögn sérfróðra manna. Kannski hefur veðurblíðan verið svipuð og þegar Tómas Guðmundsson orti:

Í vestri sólin sígur  
og slen á skóga hnígur,
og prúðar stjörnur stara
á stlltu, bláu sundin.
En líf í limið færist
og laufið hægan bærist,
því álfaflokkar fara
til fundar inn í lundinn.

Það er þegar ákveðið að framvegis verður ganga fjörulallans á Reykjanesi á Jónsmessunótt og rifjaður upp ýmiskonar fróðleikur um lífið við sjávarsíðuna.

 

Jónsmessuhátíð Síldarminjasafnsins 2010  (júní 2010)

Það er orðin árlegur viðburður að Síldarminjasafn Íslands haldi Jónsmessuhátíð með málþingi að degi og söngskemmtun um kvöldið undir heitinu "Á frívaktinni - óskalaga þáttur sjómanna í beinni útsendingu". Á frívaktinni er þjóðþekktur einstaklingur á sviði sjómannatónlistar heiðraður. Að þessu sinni var það Ómar Ragnarsson sem mætti ásamt hljómsveit hússins.

Málþingið fjallaði um bátavernd og var lokahnykkur á samstarfsverkefni Síldarminjasafnsins og safnsins í Gratangen í Noregi.

Dagskráin:

Laugardagur 26. júní. Grána kl. 13:30

Málþing: Bátavernd og endurheimt fornrar verkmenningar
Lokaþáttur samvinnuverkefnis Síldarminjasafnsins og Bátaverndarmiðstöðvar Norður-Noregs. Fundur í samvinnu við Samband íslenskra sjóminjasafna (SÍS). Fundarstjóri: Rósa Margrét Húnadóttir, safnvörður Síldarminjasafnsins.

13:30 Setning. Örlygur Kristfinnsson, safnstjóri.
13:35 Eiríkur Þorláksson, fulltrúi menntamálaráðuneytisins flytur ávarp.
13:45 Björn Lillevoll, bátsmiður. Bátavernd í Noregi og samstarf við Ísland.
14:00 Stutt kynning á bátasmíðaverkefni Gratangens og Siglufjarðar.
14:15 Gunnar Marel Eggertsson bátasmiður. Íslendingur smíðaður.
14:30 Haraldur Ingi Haraldsson, Gásum. Íslenski miðaldabáturinn.
14:45 Kaffihlé
15:05 Jón Sigurpálsson, safnstjóri og formaður SÍS, kynnir verkefni Byggðasafns Vestfjarða. Forðað úr glatkistunni - horfin handtök lifna við.
15:20 Ágúst Ó. Georgsson, Þjóðminjasafninu. Átak um bátavernd.
15:35 Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Íslenska vitafélagsins og verkefnisstjóri Fishernets. Samvinna og heildarsýn.
15:50 Fulltrúi Reykhólahópsins segir frá bátasmíða- og verndarverkefnum Breiðfirðinga. Heimildarmyndin Súðbyrðingur eftir Ásdísi Thoroddsen sýnd (57 mín.)

Til málþingsins var boðið öllum áhugamönnum um vernd báta og íslenskra bátasmíðahefða. Aðgangur ókeypis en kaffi selt í fundarhléi. Málþingið var vel heppnað, þó svo það hafi ekki verið mannmargt. Þátttakendur kvöddust með það að fyrirheiti að hittast að hausti og halda samstarfinu áfram.

 

Norsk-íslenska afkvæmið Soffía 

Afrakstur samstarfsverkefnis Síldarminjasafnsins og soutajatNordnorsk fartøyvernsenter og båtmuseum í Gratangen er nú lokið. Báturinn Soffía fór í jómfrúarferð sína í október á síðasta ári og var síðan máluð og geymd inni á safni. Áður en haldið var á sjóinn fór Örlygur með stutta sjóferðabæn: „Fleyið blessi og farmenn þess faðirinn góði og vísi.“

Í sumar er ætlunin að Soffía verði nýtt á sjónum. Bátsverjar í jómfrúarferðinni voru þeir Skúli Thoroddsen, smiður og Örlygur Kristfinnsson, safnstjóri. Á myndinni er ekki annað að sjá en að áratökin séu samstillt hjá þeim félögum. Það eru ófá handtökin sem liggja að baki smíði báts og samstarfið við Gratangen hefur reynst mjög lærdómsríkt og gjöfult. Á málþingi um bátavernd og endurheimt fornrar verkmenningar, sem var lokahnykkur verkefnisins, sagði yfirbátasmiðurinn Björn Lillevoll frá bátavernd í Noregi og smíði Soffíu.  

 
Umhverfisráðherra opnar heimasíðu Fishernet

Í dag, fimmtudaginn 15. apríl 2010 opnaði Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra heimasíðu Fishernet formlega á veraldarvefnum. Heimasíðan www.fishernet.is hefur að geyma margvíslegan fróðleik um strand- og fiskveiðimenningu Íslands og er unnin af Stofnun Vilhjálms Stefánssonar. Af því tilefni var haldinn blaðamannafundur á Borgum, fundarsal á fjórðu hæð klukkan 10:30 þar sem starfsmenn stofnunarinnar kynntu vefinn og sögðu frá verkefninu og ráðstefnu því tengdu sem haldin verður í Ketilhúsinu 7. maí. Ráðherra opnaði síðan vefinn.Fishernet-opnun-20100415-00

 

Sjónvarpsfrétt frá N4: opnun Fishernet vefsíðunnar 19. apríl 2010 

Frétt um opnun Fishernet vefsíðunnar í Vikudegi

 
Fleiri greinar...
  • Lærum um hafið!
  • Fréttabréf Trossunnar komið út í annað sinn!
  • Frá Sláturhúsi til Hvalasafns
  • Fishernet í Galiciu á Spáni
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 2
fishernet.is | Stofnun Vilhjálms Stefánssonar | http://www.svs.is | sími: 460 8980 | bréfsími: 460 8989 | hafa samband