Books
DocumentsDate added
Sjósókn sunnlenskra kvenna frá verstöðvum í Árnessýslu 1697-1980, Þórunn Magnúsdóttir 1982
Ritgerð til Cand.mag. prófs við heimspekideild Háskóla Íslands 1982
Skútuöldin, I bindi. Gils Guðmundsson. Bókaútgáfan Örn og Örlygur, 1977.
Með blöndu af húmor og næmri tilfinningu lýsir Lúkas kjörum fjölskyldu sinnar í æsku sem oft á tíðum voru bág. Hafið er örlagavaldur í lífi hans. Lukas Kárason. Útgefandi Íslenska Bókaútgáfan 2001.
Um tuttugu ára skeið gagnrýndi Ásgeir Jakobsson, rithöfundur, fiskveiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar í snjöllum ádeilugreinum sem birtust í Morgunblaðinu. Hann taldi fiskifræðinga ekki búa yfir nægilegri þekkingu á lífríki sjávar til að fara í stjórnunarleik með fiskveiðarnar. Ásgeir Jakobsson, Nýjabókafélagið 2001.
Bókin fjallar um þau lög og reglur sem gilda á hafinu. Gunnar G. Schram. Háskólaútgáfan 2002.
Í bókinni er sagt frá lífsháttum hvala, atferli þeirra og hegðun. Ásbjörn Björgvinsson og Helmut Lugmayr.Ásbjörn Björgvinsson og Helmut Lugmyr. Forlagið - JPV útgáfa 2002.
Í þessari bók er rakin saga vitaþjónustu á Íslandi, en hún hófst þann 1. desember 1878 þegar tendrað var ljós á fyrsta vita landsins á Valahnúk á Reykjanesi. Guðmundur Bernódusson, Guðmundur L. Hafsteinsson, Kristján Sveinsson. Útgefandi Siglinga Stofnun 2002.
Slysavarnafélag Íslands, sem stofnað var árið 1928, fékk strax mikinn stuðning þjóðarinnar. Saga félagsins er rakinn og sagt frá björgunar afrekum bæði til Sjós og lands. Einar S. Arnalds. Útgefandi Mál og Mynd. 2001.
Árásinn á Goðafoss árið 1944 í máli og myndum. Ottar Sveinsson. Útgefandi Stöng.
Bókinn segir frá hatrömum átökum Íslendinga og Breta þegar landhelginn var færð út í 200 mílur. Óttar Sveinsson. Útgefandi Útkall.
Eitt mesta björgunar afrek Íslandssögunnar varð þegar lítil sveit undir stjórn íslenska skipstjórans Einars Sigurðssonar kom hátt í tvö hundruð, sjóliðum af Kanadíska tunduspillinum Skeena, til bjargar eftir að hann strandaði skammt undan viðey. Óttar Sveinsson. Útgefandi: Útkall.
Alfræðirit um fiska Íslands skrifað af virtum vísindamönnum á sviði fiskifræði. Myndir og greinargóðar upplýsingar um 340 fisktegundir auk ítarlegrar umfjöllunar um hverja tegund, helstu útlitseinkenni, lit, stærð, lífshætti, heimkynni og nytjar. Gunnar Jónson og Jón Pálsson. Myndskr: Jón Baldur Hlíðberg. Útgefandi Vaka-Helgafell.
Langerfiðasta útkall sem þaulreynd áhöfn TF-LÍF hafði lent í var rétt sunnan við Sandgerði fyrir fyrir jólin 2006, þegar sjö aðframkomnum Dönum af varðskipinu Triton var bjargað, eftir tvær klukkustundir í sjónum. Þeir höfðu farið í um borð í bátin til þess að sinna athugunum á vegum Danska varðskipsins. Óttar Sveinsson. Útgefandi Útkall.

Þýðing og áhrif stjórnarskrárákvæðis um þjóðareign á auðlindum sjávar. Safn ritgerða um eitt mesta hitamál samtímans, gefið út í samvinnu við RSE.Ritstj.: Birgir Tjörvi Pétursson, Davíð Þorláksson,Guðrún Gauksdóttir,Ragnar Árnason, Sigurður Líndal, Sigurgeir B. Kristgeirsson Útgefandi Bókafélagið Ugla 2007

Um eignarréttabundna fiskveiðistjórnun. Ritgerðir byggðar á fyrirlestrum á ráðstefnu RSE í ágúst 2006.Ritstj.: Birgir Þ Runólfsson og Ragnar Árnason. Útgefandi Bókafélagið Ugla, 2008.
Bókin Íslenskir sjómenn er nýstárleg bók um hetjur hafsins. Meginhluti verksins eru litmyndir af sjómönnum við störf sín og heima við. Rætt er við menn, unga og aldna, sem hafa upplifað íslenskan sjávarútveg í áratugi, fiskvinnslur heimsóttar og margbreytileiki íslensks sjávarútvegs skoðaður frá ýmsum sjónarhornum í stuttum pistlum. Útgefandi Útgáfufélagið Ég og Þú 2008.
Þessi bók veitir almenningi innsýn í hinn leyndardómsfulla heim sjávarins, þar sem margvíslegar furðuskepnur dvelja. Bókin er prýdd fjölmörgum fallegum ljósmyndum af íslenskum sjávarlífverum í sínu náttúrulega umhverfi, sem eru teknar við köfun. Jörundur Svavarson og Pálmi Dungal. Útgáfa: Útgáfufélagið Þú og Ég, 2008.
Í bókinni er saga hafnarframkvæmda rakin frá því seint á 19. öld til samtímans. Kristján Sveinsson. Útgefandi Siglingastofnun Íslands, 2009.
Vorið 2008 var haldið málþing á Patreksfirði sem kallaðist Matur og menning á suðursvæði Vestfjarða. Fjallað var um verkun og meðferð matvæla sem landið og sjórinn gefa,, hlunnindi við Breiðafjörð, mataræði sjósóknara á fyrri tíð, sjóræningja á Vestfjörðum, breiðfirsku bátana, náttúru og sögu suðursvæðis Vestfjarða ofl. Umsjón Magnus Ólaf Hansson og Hlynur Þór Magnusson. Útgefandi Vestfirka Forlagið.
Fimmtán Bretar berjast fyrir lífi sínu í miskunnarlausu brimróti á togaranum Dhoon, sem er strandaður undir klakabrynjuðum veggjum Látrabjargs. Óttar Sveinsson Við Látrarbjarg.