Books
DocumentsDate added
Höfundur Jón Gunnar Kristinsson, útg. 1996
Höfundur: Örn Arnarson, útg. 1972. Magnús Stefánsson ólst upp á Þorvaldsstöðum.
Höfundur Kristján frá Djúpalæk (æviþættir útg. 1984.) Kristján ólst upp á Djúpalæk í Skeggjast.hr.
Ari Sigvaldason er höfundur bókar, útefandi Borgarnes: Grímshús, 2011
Þykkvibær er ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar hugsað er til sjósóknar. Á öldum áður var þó útræði í Þykkvabænum og blómlegt atvinnuíf sem tengdist sjósókn og lengi dreymdiíbúa í Rangárþingi um góð hafnarmannvirki.
Saga Þykkvabæjar – "Þúsund ára sveitaþorp" eftir Árna Óla var gefin út af Menningarsjóði árið 1962 . Bókin er vistuð á vef Rangárþings ytra: http://rangarthing.is/menning-og-mannlif/annad/thusund-ara-sveitathorp
Jakob Jakobsson varaði við hruni norsk-íslenska síldarstofnsins árið 1966. Enginn hlustaði. Svo lauk veislunni skyndilega. Jón Hjartarson, Útgefandi Vestfirska forlagið.
Bókinn fjallar um sjávarháska og mannskaða skipa sem tengjast Eyjafyrðinum. Sigurður Ægisson, Júlíus Kristjánsson, Jón Hjaltasson
Fiskifélagið var um áratugi hreyfiaflið í íslenskum sjávarútvegi. Íslenska iðnbyltingin, Slysavarnafélag Íslands, hagnýting karfans, hin ægilega saltfiskgula, mótoristanám, landhelgisgæsla, fiskveiðikerfi, skólaskip og ábyrgar fiskveiðar, allt þetta á þráð í sögu Fiskifélagsins. Hjörtur Gíslason og Jón Hjaltason. Útgefandi Völuspá Ehf
Bókin er óður til Óðins og skipverja hans, sem voru hetjur okkar tíma í baráttunni við erlendar þjóðir og óblíð náttúruöfl. Helgi Máni Sigurðson. Útgefandi: Víkinn Sjóminjasafnið Í Reykjavík
Þessi bók hefur að geyma safn svipmynda og frásagna af fólki sem setti mark sitt á lífið í síldarbænum Siglufirði fram eftir síðustu öld. Örlygur Kristfinnson. Útgefandi Uppheimar, 2010.
Árið 1807 gerðu Bretar stórskotaárás á Kaupmannahöfn og Danir gengu í lið með Frökkum. Breski flotinn var allsráðandi í norðurhöfum og hertók flest Íslandsskipin. Magnús Stephensen var á einu þessara skipa og lýsir hann ferðinni, dvöl sinni í Kaupmannahöfn og tilraunum sínum til að komast aftur heim til Íslands. Samantekt, Anna Agnarsdóttir og Þórir Stepensen, Útgefandi Sögufélag 2010.
Myndabók í stóru broti þar sem ljósmyndarinn Lárus Karl sýnir okkur einstakar myndir af helstu eyjum við strendur Íslands. Útgefandi Ljósmynd Útgáfa.
Fjallað er um sögu Amerískra lúðuveiða við Ísland strendur á 19. öld og áhrif þessara veiða á Þingeyri. Jóhann Diego Arndórsson. Útgefandi Vestfirska Forlagið.
Hér er sögð saga hinnar fornu jarðar, Laugarness, frá landnámstíð fram yfir 1930. Meðal efnis er umfjölun um fiskverkun á Ytri og Innri Kirkjusandi og Álfheimum. Þorgrímur Gestsson sem er jafnframt útgefandi.
Fimmtán Bretar berjast fyrir lífi sínu í miskunnarlausu brimróti á togaranum Dhoon, sem er strandaður undir klakabrynjuðum veggjum Látrabjargs. Óttar Sveinsson Við Látrarbjarg.
Vorið 2008 var haldið málþing á Patreksfirði sem kallaðist Matur og menning á suðursvæði Vestfjarða. Fjallað var um verkun og meðferð matvæla sem landið og sjórinn gefa,, hlunnindi við Breiðafjörð, mataræði sjósóknara á fyrri tíð, sjóræningja á Vestfjörðum, breiðfirsku bátana, náttúru og sögu suðursvæðis Vestfjarða ofl. Umsjón Magnus Ólaf Hansson og Hlynur Þór Magnusson. Útgefandi Vestfirka Forlagið.
Í bókinni er saga hafnarframkvæmda rakin frá því seint á 19. öld til samtímans. Kristján Sveinsson. Útgefandi Siglingastofnun Íslands, 2009.
Þessi bók veitir almenningi innsýn í hinn leyndardómsfulla heim sjávarins, þar sem margvíslegar furðuskepnur dvelja. Bókin er prýdd fjölmörgum fallegum ljósmyndum af íslenskum sjávarlífverum í sínu náttúrulega umhverfi, sem eru teknar við köfun. Jörundur Svavarson og Pálmi Dungal. Útgáfa: Útgáfufélagið Þú og Ég, 2008.
Bókin Íslenskir sjómenn er nýstárleg bók um hetjur hafsins. Meginhluti verksins eru litmyndir af sjómönnum við störf sín og heima við. Rætt er við menn, unga og aldna, sem hafa upplifað íslenskan sjávarútveg í áratugi, fiskvinnslur heimsóttar og margbreytileiki íslensks sjávarútvegs skoðaður frá ýmsum sjónarhornum í stuttum pistlum. Útgefandi Útgáfufélagið Ég og Þú 2008.
ADVANCES IN RIGHTS BASED FISHING: Extending the Role of Property in Fisheries Management
07/03/2012
Hits: 0
Um eignarréttabundna fiskveiðistjórnun. Ritgerðir byggðar á fyrirlestrum á ráðstefnu RSE í ágúst 2006.Ritstj.: Birgir Þ Runólfsson og Ragnar Árnason. Útgefandi Bókafélagið Ugla, 2008.