| Sigríðar - strandið |
|
Árið 1928 voru flestir Eyjabátar á sjó þegar skall á vonsku veður með mikilli fannkomu og dimmviðri. Undir kvöld var komið fárviðri. Voru bátarnir að tínast inn fram eftir kvöldinu, en mörgum gekk illa að ná landi, bæði vegna veðurhæðar og - ekki síður - dimmviðris. Einn þessara báta var V.b. Sigríður VE 240, 12 lesta bátur, með 30 ha. Árni í Eyjum skráði frásögnina sem birtist í blaðinu Blik árið 1965. |





