|
Árið 1928 voru flestir Eyjabátar á sjó þegar skall á vonsku veður með mikilli fannkomu og dimmviðri. Undir kvöld var komið fárviðri. Voru bátarnir að tínast inn fram eftir kvöldinu, en mörgum gekk illa að ná landi, bæði vegna veðurhæðar og - ekki síður - dimmviðris. Einn þessara báta var V.b. Sigríður VE 240, 12 lesta bátur, með 30 ha. Árni í Eyjum skráði frásögnina sem birtist í blaðinu Blik árið 1965.
Sigríðar - strandið: Og bjargför Jóns Vigfússonar |
|
|
Ágúst Árnason kennari fór haustið 1897 sem heimiliskennari að Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum. Í þorralok 1898 gerðist heimiliskennarinn formaður á einu af áraskipum Þorvaldar bónda og reri út frá Eyjafjallasandi. Skipið var sexæringur ,, áttróinn", þ.e. með barkaróðri. Skipshöfnin var 12 - 14 manns. Frásögn af því sem Ágúst kallaði ,,venjulegan" róður skráði hann skömmu áður en hann lést og birtist frásögnin í blaðinu Blik árið 1963.
Fiskiróður - Blik 1963 |
|
Árið 1930 sigldi inn í Vestmannahöfn síðasta farmseglskipið. Skipið var í eigu kaupmannsins Gísla J. Johnsen, hét ,,San" og flutti timburfarm til verzlunar Gísl. Á ,,San" var fimm manna áhöfn. Frásögn Jóns Í. Sigurðssonar af komu skipsins fer hér á eftir og birtist í blaðinu Blik árið 1958.
Síðasta seglskipið - Blik 1958 |
|
Í gegnum aldir hafa lundaveiðar verið hluti af lífi Vestmannaeyinga. Stundum hafa veiðimennirnir lent í hrakningum við veiðar sínar og hér fer frásögn af einni slíkri för. Förinni var heitið í Álsey til lundaveiða árið 1890 og birtist frásögnin í blaðinu Bliki árið 1951. Greinin er skráð af Magnúsi Guðmundssyni.
Ferð í Álsey - Bliki, árið 1951 |
|
Systrasynirnir Guðjón Magnússon og Hallgrímur Þórðarson fóru á handfæraveiðar í mars 1949 á opnum þriggja smálesta trillubát. Hér á eftir fer er grein um svaðilför þeirra sem birtist í blaðinu Blik árið 1951.
Í sjávarháska - Blik 1951 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 2 |