| Umhverfisráðherra opnar heimasíðu Fishernet |
|
Í dag, fimmtudaginn 15. apríl 2010 opnaði Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra heimasíðu Fishernet formlega á veraldarvefnum. Heimasíðan www.fishernet.is hefur að geyma margvíslegan fróðleik um strand- og fiskveiðimenningu Íslands og er unnin af Stofnun Vilhjálms Stefánssonar. Af því tilefni var haldinn blaðamannafundur á Borgum, fundarsal á fjórðu hæð klukkan 10:30 þar sem starfsmenn stofnunarinnar kynntu vefinn og sögðu frá verkefninu og ráðstefnu því tengdu sem haldin verður í Ketilhúsinu 7. maí. Ráðherra opnaði síðan vefinn.
Television footage by N4 of the opening ceremony of the Fishernet web site 19th of April 2010. |





