headBanner4.jpg
Velkomin á vef fishernet.is
  • Arctic Portal
  • AP Community
  • Portlets
  • Arctic Council
  • Science
  • Organizations
  • Maps
  • Library
  • Acronyms
  • Links
  • Search
  • Heim
  • Um okkur
  • Fishernet skýrslur
  • Strandmenning
  • Bátar og skip
  • Fiskveiðar
  • Sjávarspendýr
  • Samfélag
  • Samtímamál
  • Grænland og Færeyjar
  • Ströndin
  • Bækur, tímarit & kvikmyndir
  • Ráðstefnur
  • Fréttir og fundir
  • Áhugaverð verkefni
  • Áhugaverðir tenglar
  • Verkefnið í fjölmiðlum
  • Efni úr ljósvakamiðlum
    • Strandmenning - viðtöl
  • Efnistök
  • Innskráning
  • Veftré
Íslenska (IS)English (United Kingdom)
forum

friendlybanner_logo

fishernet_newsletter_3_logo

Strandmenning hjá Pétri Halldórssyni og Fishernet

Pétur Halldórsson hjá RÚV, í samstarfi við Fishernet verkefni Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, hefur unnið efnisöflun í formi viðtala þar sem meginþema er strandmenning á Íslandi. Rætt er við fjölda fólks og er hægt að hlusta á viðtölin með því að smella á skrárnar í listanum. Neðar á síðunni er svo listi yfir viðmælendur og frekari upplýsingar um umfjöllunarefni.

 


PopUp MP3 Player (New Window)

 

Viðmælendalisti

Árni B Árnason um vélvirkjun, bátasmíðar og bátavefinn (Akureyri) Hann segir frá uppvexti á Grenivík, sjómennskuferlinum og aðaláhugamálinu hin síðari ár, að skrá íslenska báta og safna heimildum um þá. 36.54 Viðtalið er tekið á haustdögum 2010 af Pétri Halldórssyni, dagskrárgerðamanni á Ríkisútvarpinu.

Björn Ingólfsson, Grenivík um útgerðarsögu Grýtubakkahrepps sem hann hefur skrifað bók um, Bein úr sjó. 14.53 Viðtalið er tekið á haustdögum 2010 af Pétri Halldórssyni, dagskrárgerðamanni á Ríkisútvarpinu.

Finnur Ingvi Kristinsson um Hannes Boy Café á Siglufirði. Veitingastaðurinn er hluti af þeirri miklu uppbyggingu sem Rauðka stendur fyrir á Siglufirði og unnið er að í anda síldaráranna og þess húsagerðarstíls sem þá ríkti. 12.30 Viðtalið er tekið á haustdögum 2010 af Pétri Halldórssyni, dagskrárgerðamanni á Ríkisútvarpinu.

Guðbjörg Guðmundsdóttir [1932-] frá Skálum á Langanesi. Guðbjörg ólst upp á Skálum til 10 ára aldurs og segir frá lífinu þar, kuldanum og snjóþyngslunum á vetrum, leikjum krakkanna, matnum, sjómönnunum, húsakostinum o.fl. 26.31 Viðtalið er tekið á haustdögum 2010 af Pétri Halldórssyni, dagskrárgerðamanni á Ríkisútvarpinu.

Guðný Friðfinnsdóttir sjómannsekkja (Siglufjörður). Guðný segir frá lífi sjómannskonunnar á árum áður þegar sjómenn voru úti á sjó mestallt árið og komu aðeins fáeina daga heim milli túra. Þá var oft mikill drykkjuskapur og í raun var Guðný ein með börnin alla tíð þar til maður hennar kom í land útslitinn. Hún segir meðal annars frá siglingu með afla til Þýskalands sem hún fór með í ásamt fleiri sjómannskonum. 20.38 Viðtalið er tekið á haustdögum 2010 af Pétri Halldórssyni, dagskrárgerðamanni á Ríkisútvarpinu.

Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri um kvótaeign Grýtubakkahrepps. Hreppurinn tók þá ákvörðun að kaupa kvóta eftir að kvótakerfið var sett á og það hefur að mörgu leyti bjargað byggðinni þar. Sveitarfélagið hefur tekið þátt í atvinnurekstri með ýmsum hætti jafnvel þótt almennt hafi slíkt ekki verið talið æskilegt á síðari árum. (Grenivík) 11.34 Viðtalið er tekið á haustdögum 2010 af Pétri Halldórssyni, dagskrárgerðamanni á Ríkisútvarpinu.

Gunnar Árnason [1924-] um einangrun og skíðamennsku í Ólafsfirði 16.55 Viðtalið er tekið á haustdögum 2010 af Pétri Halldórssyni, dagskrárgerðamanni á Ríkisútvarpinu.

Gunnar Árnason um landlegu á Skagaströnd 1940 (Ólafsfjörður) 7.16 Viðtalið er tekið á haustdögum 2010 af Pétri Halldórssyni, dagskrárgerðamanni á Ríkisútvarpinu.

Gunnar Árnason um síldveiðar 1940. Gunnar segir frá banaslysi sem varð við æfingar á Ólafsfirði þegar hann ásamt nokkrum félögum fóru að æfa róður á Ólafsfjarðarvatni áður en þeir færu á síld. Gunnar fór samt á síldina á bát í eigu föður síns, segir frá ýmsum atvikum, t.d. tannburstun á dekkinu sem vakti mikla furðu félaga hans því þeir höfðu aldrei séð tannbursta. Sagt er frá landlegu á Raufarhöfn, inflúensu, vatnstöku á Skálum á Langanesi og skemmtilegu atviki því tengdu o.fl. 42.10 Viðtalið er tekið á haustdögum 2010 af Pétri Halldórssyni, dagskrárgerðamanni á Ríkisútvarpinu.

Gunnar Kristinsson - Pétur Halldórsson, dagskrárgerðamaður á Ríkisútvarpinu ræðir við Gunnar Kristinsson um Stígandaslysið 1967 (Ólafsfjörður). Stígandi frá Ólafsfirði var á veiðum norður undir Svalbarða þegar hann fórst og skipverjar voru á reki í björgunarbátum í næstum fimm sólarhringa áður en þeir fundust. Atvikið varð til þess að tilkynningaskyldu var komið á hjá íslenskum sjómönnum. 45.07

Halldóra Jónsdóttir um söltun og símvörslu. Halldóra byrjaði mjög ung að salta síld með móður sinni á Siglufirði og vann í síldinni fram á unglingsár en fór síðan að vinna á símstöðinni. Þar gekk oft mikið á þegar flest var fólkið á síldinni og þurfti stundum að bíða klukkutímum saman eftir að fá afgreitt símtal. 24.58 Viðtalið er tekið á haustdögum 2010 af Pétri Halldórssyni, dagskrárgerðamanni á Ríkisútvarpinu.

Hannes Baldvinsson um síldveiðar og síldarmat (Siglufjörður). Hannes var á síld sem ungur maður en varð síðar síldarmatsmaður og fór vegna þeirra starfa víða um landið. 1.02.03 Viðtalið er tekið á haustdögum 2010 af Pétri Halldórssyni, dagskrárgerðamanni á Ríkisútvarpinu.

Helgi Héðinsson - Í beituskúr Helga Héðinssonar á Húsavík. 11.27 Viðtalið er tekið á haustdögum 2010 af Pétri Halldórssyni, dagskrárgerðamanni á Ríkisútvarpinu.

Kristbjörg Héðinsdóttir um beitningarvinnu og lífið neðan við Bakka á Húsavík 32.07 Viðtalið er tekið á haustdögum 2010 af Pétri Halldórssyni, dagskrárgerðamanni á Ríkisútvarpinu.

Margrét Jóhannsdóttir um beituskúrinn sem gerður hefur verið upp í flæðarmálinu á Grenivík. Skúrinn átti afi hennar fyrst og síðan faðir hennar og þarna ólst hún upp við að fylgjast með störfum manna og kvenna við beitningu, netagerð og sjóróðra. Hún kann öll handtökin sjálf og segir frá því sem er að sjá í sjóbúðinni og líka frá böllunum sem þar voru haldin. 26.03 Viðtalið er tekið á haustdögum 2010 af Pétri Halldórssyni, dagskrárgerðamanni á Ríkisútvarpinu.

Rósa Margrét Húnadóttir um Síldarminjasafnið og sjómannalögin. Rósa er safnvörður á Síldarminjasafninu en gerði lokaritgerð í þjóðfræði við HÍ um íslensku sjómannalögin og þá menningu sem í kringum hana er. 33.04 Viðtalið er tekið á haustdögum 2010 af Pétri Halldórssyni, dagskrárgerðamanni á Ríkisútvarpinu.

Sigurjón Jóhannesson, fyrrverandi kennari og skólastjóri á Húsavík, segir frá því þegar hann fór frá Húsavík austur á Raufarhöfn á stríðsárunum til þess að vinna í síldarbræðslunni þar. Sagt er frá áhættuþókknuninni sem var vegna stríðsins og kölluð var hræðslupeningar, lýst vöktum og aðstæðum í verksmiðjunni, verkunum og aðbúnaði, næturvaktinni sem var kölluð hundavakt, ýmsum atvikum, t.d. þegar lá við að stórslys yrðu, um íþróttaiðkun, skemmtanir þar sem mun fleiri piltar voru en stúlkur, um skort á hreinlætisaðstöðu, um kostinn, um verslanir á Raufarhöfn og síðan um beitningarvinnu á Húsavík þegar Sigurjón var stráklingur, um beituflutninga frá Akureyri til Húsavíkur (loðnu), um störf Sigurjóns sem ræsis o.fl. 49.35 Viðtalið er tekið á haustdögum 2010 af Pétri Halldórssyni, dagskrárgerðamanni á Ríkisútvarpinu.

 

 
fishernet.is | Stefansson Arctic Institute| http://www.svs.is | tel: 460 8980 | fax: 460 8989 | contact us