| Samstarfsverkefni Síldarminjasafns Íslands á Siglufirði við Bátaverndarmiðstöð Norður-Noregs í Gratangen um menntun bátasmiða |
|
Myndin er tekin í október 2007 þegar norður-norskir bátasérfræðingar komu í heimsókn í Slippinn og sátu undirbúningsfund með heimamönnum.
• Menntun bátasmiða - endurheimt fornrar þekkingar á smíði tréskipa. • Lögð áhersla á smíði lítilla árabáta með segli - hefðbundnar bátagerðir, efnisnotkun og vinnubrögð. • Vettvangur fræðslu og námskeiða með samstarfi við menntastofnanir. • Hafin raðsmíði eða sérsmíði slíkra báta sem hæfðu til sölu á markaði. Hinn íslenski bátur til siglinga og veiða á sjó og vötnum. • Þar fari fram viðgerðir gamalla báta í eigu einstaklinga eða safna. Slippurinn - gamla bátasmíðastöðin - verði kjarninn í nýrri deild Síldarminjasafnsins þar sem lögð verði áhersla á sögu íslenskrar
Bátasmíðaskemman var byggð 1934 og mun dráttarbrautin vera að stofni til frá sama tíma. Um áratugi var Slippurinn starfræktur sem skipasmíðastöð og þar fóru fram viðgerðir smárra og meðalstórra skipa fram yfir 1990. Sjá frétt um verkefnið hér.
|









