headBanner13.jpg
You need Adobe Flash player to view this content. Download now.
  • Heim
  • Um okkur
  • Strandmenning
  • Bátar og skip
  • Fiskveiðar
  • Sjávarspendýr
  • Samfélag
  • Samtímamál
  • Grænland og Færeyjar
  • Ströndin
  • Bækur, tímarit & kvikmyndir
  • Ráðstefnur
  • Fréttir og fundir
  • Áhugaverð verkefni
  • Áhugaverðir tenglar
  • Verkefnið í fjölmiðlum
  • Efni úr ljósvakamiðlum
  • Efnistök
  • Veftré
  • Innskráning
Íslenska (IS)English (United Kingdom)

friendlybanner_logo

fishernet_newsletter_3_logo

Forsíða Áhugaverð verkefni Námskeið í viðhaldi og endursmíði gamalla trébáta.
Námskeið í viðhaldi og endursmíði gamalla trébáta.

april-2009-0035Sífellt glæðist áhugi á smíði og viðhaldi gamalla trébáta. Á Bátasafni Breiðafjarðar á Reykhólum er að finna einstaklinga sem hafa miklu að miðla, bæði í bátasmíði sem og öðru handverki og sögu.

Dagana 6. - 18. september næstkomandi verður námskeið í Bátasafni Breiðafjarðar á Reykhólum í viðhaldi og endursmíði gamalla trébáta. Námskeiðið er verklegt og öllum opið.

Á námskeiðinu verður gert við súðbyrtan vélbát sem er 6.5 m. Áætlað er að skipta námskeiðinu í fernt og geta þátttakendur því bæði valið að taka allt námskeiðið eða einungis hluta þess.

Námskeiðið skiptis þannig:

6. - 8. sept. Skipt um afturstefni.

9. - 11.sept. Skipt um í byrðing.

12.- 14. sept. Höggvin bönd.

15.- 18. sept. Skipt um borðstokka.

Einnig verður fjallað um segl og reiðabúnað með gamla laginu.

Með því að hafa námskeiðið fjórskipt gefst þátttakendum kostur á að velja sér þá verkþætti sem þeir telja að nýtist sér best - einn eða fleiri.

Þátttakendur greiða einungis fyrir viðveru og geta því sjálfir stjórnað kostnaði.

Hver klukkustund kostar 1000 kr. Hámarkskostnaður á dag er 8000 kr.

Einnig er hægt að fá að taka þátt í smíðinni allan tímann og er þá fast verð krónur 60.000 kr.

Þátttakendur sjá sér fyrir fæði og gistingu á námskeiðstímanum.

Möguleikar á gistingu eru t.d tjaldstæði fyrir fellihýsi og hjólhýsi, gistiheimilið Álftaland, Bjarkarlundur og einnig er bændagisting á svæðinu.

Skráning á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þar eru þátttakendur beðnir um að skrá nafn, heimilisfang og síma og þann hluta námskeiðsins sem þeir kjósa að nýta sér. Sjá einnig á heimasíðu bátasafns Breiðafjarðar Reykhólum

 
fishernet.is | Stefansson Arctic Institute| http://www.svs.is | tel: 460 8980 | fax: 460 8989 | contact us