headBanner9.jpg
You need Adobe Flash player to view this content. Download now.
  • Heim
  • Um okkur
  • Strandmenning
  • Bátar og skip
  • Fiskveiðar
  • Sjávarspendýr
  • Samfélag
  • Samtímamál
  • Grænland og Færeyjar
  • Ströndin
  • Bækur, tímarit & kvikmyndir
  • Ráðstefnur
  • Fréttir og fundir
  • Áhugaverð verkefni
  • Áhugaverðir tenglar
  • Verkefnið í fjölmiðlum
  • Efni úr ljósvakamiðlum
  • Efnistök
  • Veftré
  • Innskráning
Íslenska (IS)English (United Kingdom)

friendlybanner_logo

fishernet_newsletter_3_logo

Forsíða Áhugaverð verkefni Krókaverkefnið
Krókaverkefnið

krokaverkefnid_mynd"Krókaleið um Snæfellsnes"

Á Snæfellsnesi eru minjar og mannlíf tengd útgerð og sjósókn, allt frá landnámi til vorra daga. Þar finnst margt áhugavert tengt sjónum, sem gaman er að heyra um, upplifa og skoða, eða jafnvel smakka.

Hópur fólks á Snæfellsnesi hefur nú tekið höndum saman og eru að vinna að verkefni sem byggir á nálægð við sjóinn, þeim tækifærum og sérstöðu sem það skapar þessu svæði. Verkefnið kallast Lífið við sjávarsíðuna – áfangastaðurinn Snæfellsnes.

Markmiðið með þessu verkefni er að miðla þekkingu, auka framboð á dægradvöl og auðga upplifun þeirra sem sækja Snæfellsnes heim.

Í sumar var gefin út lítil „krókabók“ – þar sem kynntir eru 14 aðilar sem eru í Krókaverkefninu (verkefnið er kallað Krókaverkefnið í daglegu tali) og eru nú þegar með einhverja „vöru“ að bjóða fólki. Það er líka hægt að safna stimplum í þessa bók þegar maður heimsækir staðina.

Þessu verkefni var ýtt úr vör nokkuð nýlega og var haldið námskeið fyrir þátttakendur vorið 2009 í samstarfi við IMPRU og Hólaskóla. Í framhaldi af því varð nokkur vöruþróun hjá einstaka aðilum í verkefninu; einhverjir eru enn að þróa sína vöru og eru ekki byrjaðir að taka á móti fólki, en svo eru líka rótgrónir aðilar þátttakendur í þessu verkefni þar sem starfsemin hefur verið að þróast og geta þeir aðilar miðlað af reynslu sinni.

Í pdf skjalinu hér a neðan er að finna upplýsingar um grunnhugmyndina sem lagt var af stað með í þetta verkefni og þátttakendalistann.

Listi yfir þátttakendur

Frekari upplýsingar
 
fishernet.is | Stefansson Arctic Institute| http://www.svs.is | tel: 460 8980 | fax: 460 8989 | contact us