headBanner3.jpg
You need Adobe Flash player to view this content. Download now.
  • Heim
  • Um okkur
  • Strandmenning
  • Bátar og skip
  • Fiskveiðar
  • Sjávarspendýr
  • Samfélag
  • Samtímamál
  • Grænland og Færeyjar
  • Ströndin
  • Bækur, tímarit & kvikmyndir
  • Ráðstefnur
  • Fréttir og fundir
  • Áhugaverð verkefni
  • Áhugaverðir tenglar
  • Verkefnið í fjölmiðlum
  • Efni úr ljósvakamiðlum
  • Efnistök
  • Veftré
  • Innskráning
Íslenska (IS)English (United Kingdom)

friendlybanner_logo

fishernet_newsletter_3_logo

Forsíða Áhugaverð verkefni Húni
Húni

Húni II er stærsta eikarskip smíðað á Íslandi sem enn flýtur, smíðaður í Skipasmíðastöð KEA á Akureyri 1962-1963. Skipið var í fyrstu á síldveiðum en síðar á þorskanetum, trolli, humar, línu, netum og svo aftur á síld. Um 1990 lenti skipið á kvótakerfisflakki þegar tilhneiging var til að úrelda gamla báta, ekki hvað síst trébáta og fórna þeim fyrir önnur skip.  Árið 1994 keypti Þorvaldur Skaptason bátinn á Seyðisfirði  fyrir 10 krónur, þá var hann vélarlaus og beið  þess að vaskir menn settu hann á áramótabrennu. Þorvaldur  hraktist með bátinn á milli staða og reyndi að finna honum hlutverk. Endaði með hann í hvalaskoðun í Hafnarfirði ásamt konu sinni Ernu. Árið 2004 var bátnum siglt til Akureyrar og þar var stofnað um hann félag – Hollvinafélag Húna II.  Árið 2006 keyptu ríki, bær og KEA skipið af Þorvaldi og færðu Iðnaðarsafninu að gjöf. Gjöfinni  fylgir sú yfirlýsing að Hollvinafélagið Húni II skuli taka að sér rekstur skipsins. Þannig hefur það verið síðan og er Húni II gerður út fyrir ferðmenn, skóla og einstök verkefni. 

Hægt er að nálgast bæklinginn Verum klár, borðum fisk hérna í pdf skjali.

 
fishernet.is | Stefansson Arctic Institute| http://www.svs.is | tel: 460 8980 | fax: 460 8989 | contact us